..:: Hertoginn af Gautlandi
ggs
Testing
Leitarbox

Bloggarar
24.03.2008 16:23:18 / ggs

..:: Man Utd vs. Liverpool ::..

Í gær voru tveir stórleikir í enska boltanum . Annars vegar Man Utd vs. Liverpool og hins vegar Chelsea vs. Arsenal. Svokallaður "Super Sunday"

Chel$ki lagði Wanker og félaga 2-1 , þar sem Drogba setti 2 mörk en Bacary Sagna gerði mark Arsenal.

Leikur Man Utd og Liverpool fór vel á stað á Old Trafford . Klárasti maður ensku deildarinnar í dag , Mascherano , krækti sér í spjald strax á 11 mínútu .

Eftir 35 mínútna leik gaf Rooney sendingu inn í teig þar sem Wes nokkur Brown stökk manna hæst og skallaði boltann framhjá Reina og Skrtel og staðan orðin 1-0 United í hag . Var mikið klappað og kallað í Kardimommubæ og tók sá gamli meira segja létt dansspor á gólfinu , svo mikið var fagnað.

Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks fékk Torres gult spjald fyrir að væla í dómaranum . Datt þá ekki klárasta manni ensku deildarinnar það í hug , áður nefndur Mascherano, að hlaupa fleiri metra í átt að Steve Bennet dómara til að röfla í honum yfir spjaldi Torres . Xabi Alonso reyndi að stöðva hann , en Einstein reif sig lausan og byrjaði að tuða á bjagaðri ensku og viti menn , Steve Bennet gaf honum sitt annað gula spjald og þar með rautt og var því Rauði Herinn orðinn manni færri það sem eftir var .


Mascherano sýndi dómgreindarleysi á hæsta leveli með þessum leik . Ekki nóg með að vera rekinn af velli , þá neitaði hann að yfirgefa völlinn og reifst í öllum og á endanum varð Rafa Benitez að tala hann niður til að koma honum af vellinum .


Manchester United átti það sem eftir var leiks , fyrir utan 10 mín í seinni hálfleik , en þá áttuðu Liverpool menn sig á því að leikurinn væri hafinn , þetta væri ekki æfing .

United komst í 2-0 þegar tæpar 10 mín voru eftir að leiknum og var enginn annar en Ronaldo sem skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Nani . Ronaldo heldur greinilega áfram að skora gegn litlu liðunum í Englandi. Hann verður að fara að sanna sig og skora gegn stóru liðinum .

Tveim mínútum síðar skoraði svo Nani 3 mark United og rak síðasta naglann í kistu þeirra Liverpool manna og urðu þetta úrslit leiksins .

 

Eins og segir á www.manutd. is "Brottvikning Mascherano kom að mörgu leyti Liverpool vel, þjálfari, leikmenn og aðdáendur geta þá notað hana sem átyllu og aðalatriði leiksins en staðreyndinar tala sínu máli, United hafði splundrað vörn Liverpool ítrekað hafandi leikmanninn inn á þó einungis hafi eitt mark verið komið"

Liverpool sá aldrei til sólar . Liverpool var mætt varnarsinnað , með 4 manna vörn og 5 manna miðju. Spænska gljápíkan var ein á toppnum og gat lítið sem ekkert ógnað .

United lék sér að vörn Liverpool . Splundraði henni í gríð og erg . United átti 23 skot, þar af 16 á rammann, Liverpool 8, þar af 4 á markið.

Eins og Árni vinur minn sagði eitt sinn um vörn Liverpool . "Sterkasta vörn Englands" er eins og sykurmoli í heitu kaffi ... Auðleyst !!

ggs

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 14:09:37 / ggs

..:: Pub Quiz & Kunnulegar slóðir ::..

Við skötuhjúin skelltum okkur í fyrrakvöld út á meðal fólks í fyrsta sinn í langan tíma . Það var virkilega skrýtin tilfinning að vera innan um svona margmenni . Vissi ekki alveg hvernig ég átti að vera.



Við fórum á Allann og tókum þátt í Pub Quiz . Það er ekki af því að spyrja , en auðvitað unnum við . Reyndar klúðraði ég allgjörri barnaspurningu , tóndæmi úr James Bond mynd, og fyrir vikið fengum við 22 stig og deildum fyrsta sætinu með Árna Heiðari og fjölskyldu og fengum að launum 2 kippur af Grolsh . Hefði heilabúið verið aðeins meira notað , hefði ég ekki klikkað á þessu . Er að spá í að fara að gera krossgátur til að virkja þessi ónotuðu svæði.

Við fengum einnig aukaverðlaun sem voru í boði Hellunnar , árs áskrift að Hellunni sem er bara glæsilegt . Er svo nískur að ég hef ekki týmt að kaupa áskrift . Les Helluna alltaf á Hvanneyrarbrautinni , þannig að þetta kemur sér mjög vel.

Er reyndar ekki alveg sáttur við það hvernig Hellan er færast til austurs . Mér finnst of mikið af efni fjalla um austurbæ Fjallabyggðar . Hellan er Siglfirsk að upplagi og á að halda sig við sínar heimaslóðir . Allt í lagi að fylla upp í blaðið með efni úr þaðan en ekki helga heilu blöðunum austrinu.

- - -

Manchester United er komið á kunnulegar slóðir í ensku deildinni . Er búnir að ná efsta sætinu af Wanker og félögum í Arsenal . Við erum jafnir á stigum en eigum leik til góða sem er bara frábært . Reikna með því að við leggjum Bolton á miðvikudaginn og náum þriggja stiga forystu í deildinni , og höldum henni það sem eftir er tímabils .

1. Man.Utd.   29  21  4   4  59:15   67
2. Arsenal      30 19  10  1  58:22   67
3. Chelsea     29  19   7   3  49:18   64
4. Liverpool   30 16  11  3   55:21   59

ggs



» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  48  Alls: 179116
Dagsetning
15. mars 2010