Jæja .. Það er orðið ansi langt síðan að ég
hef misboðið fingrum mínum við að skrifa eitthvað niður á blað
til að birta hérna á minni heitt elskuðu vefsíðu , sem gott sem
aldrei er uppfærð þessa dagana , en þrátt fyrir það heldur fólk
trú við mig og lítur hérna við daglega en sér aldrei neitt nýtt
nema mynd af mér og Triple-G Sullenberger , sem sjálfur er
kominn með leið á útliti sínu , enda er þessi mynd tekin áður en
hann byrjaði að æfa en í dag er hann orðinn hávaxinn ,
dökkhærður og massaður - að eigin sögn. Ég væri nú allveg til í
að Triple-G myndi senda mér svona "before and after" mynd til
þess að sannreyna þetta . Þetta gæti orðið góð áskorun á þá sem
telja sig ekki geta þetta. En treystið mér , fyrst að Trippi
getur þetta , þá er öllum mönnum fært að gera þetta 
Afhverju hef ég ekki skrifað neitt síðustu daga
? Látum okkur nú sjá ! Á morgun segir sá lati , þetta hef ég hugsað
síðustu daga , vikur og næstum því mánuði. Það er búið að vera
mikið að gera í vinnunni , svo komu páskar , svo komu nokkrir dagar
í timburmenn , svo fór ég norður aftur og svo var ég latur enn núna
er ég búinn að liggja heim með flensu og afhverju ekki að nota
tímann og setja nokkra stafi á blað.
Loksins ! Loksins er komið sumar , allavega að
nafninu til , þótt að sum staðar megi ennþá sjá smá snjó á
Siglufirði . Hér í borg óttans er hvergi snjó að sjá , eina sem
sést eru byggingarkranar sem standa við hverja götu og
austurlandabúa að tína flöskur sem týnst hafa undir snjó eða laufum
frá því haustið áður.
Talandi um austurlandabúa .. Ég hef oft verið
sagður fordómafullur, sem gæti eflaust verið rétt , en mér er
allveg sama. Þetta eru mínar skoðanir og þeir sem þola þær ekki
geta bara hunsað mig eða farið á aðrar bloggsíður og lesið um
blómin og sólina.
En það sem ég er að reyna að segja er , að í
blokkinni sem ég bý í , Sóltúni 30 í Sódómu, býr slatti af
austurlenskum hrísgr##### . Sumir eru ágætir , aðrir slæmir og
sumir eru búnir að missa réttindin til þess að lifa hérna á okkar
ástkæra íslandi.
Það er austurlensk fjölskylda á sem býr á
hæðinni fyrir ofan okkur. Eins og flestir ef ekki allir vita , þá
eru austurlandabúar mjög svo hrifnir af Karókí , Sing Star og þess
háttar viðbjóði.
Þessi mannskratti var búinn að syngja stanslaust
fyrir páska í míkrófóninn sinn einhverja "slagara" sem hljómuðu
eins og að það væri verið að sjóða kettlinga í súpu, þvílík hljóð
sem komu niður til okkar. En þessi umræddi "Sinatra" hafði á
einhvern óskiljanlegan hátt náð að skilja húsreglurnar , þannig að
hann hætti alltaf rétt fyrir kl. 23:00 áður en ró og næði átti að
vera komin í húsið.
Helgina eftir páska ef ég man rétt, á
laugardeginum komum við Svava heim um kl. 16:00 og settumst fyrir
framan sjónvarpið og vorum við búin að ákveða það að hafa það
náðugt og lifa leti lífi það sem eftir leið dags. Árni var að vinna
og loksins ró í kotinu en við vorum varla sest þegar að "Sinatra" á
fimmtu hæðinni var byrjaður að raula í míkrófóninn sinn. Við
horfðum á hvort annað og hristum hausinn. Síðan fengum við þá
hugmynd um að fara upp til húsvarðarins og leggja fram kvörtun.
Við tökum röltið upp til húsvarðarins , bönkum
og kemur hann til dyra og segjumst við vera orðin alveg brjáluð á
þessu söngli í mann helvítinu en hann segist ekkert geta gert , því
að hann sé ekki að brjóta neinur reglur þannig séð. En bætir því
við að á 17.júní í fyrra hafi flest allir í blokkinni vaknað kl .
07:30 þegar að hann tók upp á því að syngja eins hátt og hann gat ,
þar til að kona húsvarðarins hafi fengið nóg og strunsað niður á
náttfötunum og vinsamlegast beðið hann um að lækka þetta helvíti
sem hann hafi gert og hvatti hann okkur til þess að gera það
sama.
Allt í lagi hugsuðum við ! Það sakar ekki að
prófa og með því sama bönkum við upp á hjá "Sinatra" og eftir smá
stund kemur kona til dyra sem við skulum kalla "Tilda" því það er
eina austurlenska kvenmanns nafnið sem ég þekki 
ggs : Góðan daginn , Gauti heiti ég í íbúð 406
hérna fyrir neðan og þetta er Svava.
Tilda : halú
ggs : Heyrðu , ég er að spá , er einhver séns að þið getið lækkað í
karókíinu ? Ég er alveg að verða brjálaður á þessu sem og allir
aðrir hérna í blokkinni!?
Tilda : jú (og brosir)
ggs : Þið megið alveg syngja eins og þið viljið , en bara að lækka
þetta ! ok ?
Tilda : jú (og brosir)
ggs : Þú skilur hvað ég meina ? Er það ekki ?
Tilda : jú (og brosir)
ggs : ok , takk takk
Tilda : já (og brosir)
ggs : ok , bæbæ
Tilda : bæbæ
Svo tökum við röltið ég og Svava niður í íbúð,
alveg himinlifandi yfir því hvað við vorum nú sniðug að lækka niður
í þeim og setjumst í sófann og loksins er komin ró - en hún varði
varla í hálfa mínútu !! Fíflið byrjaði aftur og núna helmingi hærra
en vanalega og heyrði ég ekki í sjálfum mér blóta né hugsa !
Nú voru góð ráð dýr .. Hvað var hægt að gera !
Fíflin skyldu greinilega ekki múkk í íslensku. Við hugsuðum með
okkur að við gætum nú prófað að tala ensku , það ætti kannski að
virka. Þá fékk ég betri hugmynd ! Hvernig væri að teikna mynd ?
Þannig að náð var í penna og blað og rissaði ég upp mynd og svo var
strunsað upp aftur !
Við börðum ágætlega fast á hurðina og loksins
kemur Tilda til dyra og bjóðum við henni góðan dag og spyr ég hana
hvort að hún hafi ekki örugglega skilið það sem við sögðum áðan og
svaraði hún á móti "jú" og brosti ! Það var greinilegt .. Hún
skildi ekkert hvað við vorum að meina. Spurðum við þá á ensku og
aftur svaraði hún já !
Í þá mund kemur Uncle Bens með míkrófóninn og
sólheimabros og spyrjum við hann á ensku hvort að hann sé
söngvarinn og svarar hann á bjagaðri ensku "yas yas ids meee
!!"
Svava segir honum þá að hann sé hryllilegur
söngvari og í guðanna bænum hættu þessu rauli !! Það eru allir að
verða klikkaðir hérna. Sólheima glottið hvarf fljótlega og upp kom
svipur sem hræddi mig og fer hann eitthvað að malda í móinn og
sýndum við honum þá myndina og byrjaði hann þá eitthvað að röfla um
páska , en við reyndum að leiðrétta að þeir væru búnir og sögðum
honum aftur að allir væru að verða geðbilaðir að hlusta á hann og
strunsuðum síðan á brott með bros á vör, og viti menn .. Það hefur
ekki heyrst múkk í honum síðan
En til gamans , þá tókum við mynd
af listaverkinu sem við gáfum Uncle Bens og Tildu og lítur hún
svona út :

Á föstudaginn í síðustu viku ákvað ég að það
væri góð hugmynd að renna heim á Sigló fyrst að það væri þriggja
daga helgi. Ég hafði nokkrum dögum áður lesið á bloggsíðunni hjá
Hauk Leós að síðasta ferð hans norður hafi verið frekar döpur
skemmtanalega séð , þannig að ég ákvað að plata hann með mér og
reyna að gera heiðarlega tilraun til að mála bæinn rauðan.
Það var ekki að okkur að spyrja , Bíóbarinn á
föstudagskvöldið og smá öl , ball á laugardagskvöldið með Stúlla og
Sævari þar sem mikið var drukkið en sumir fóru fyrr í bælið því að
Ginið fór illa með þá . Ramminn mætti á svæðið og ekki var að
spyrja að honum. Hann var ekki lengi að heilla stúlkurnar upp úr
skó... nei ég meina gömlu konurnar upp úr skónum með yndisþokka
sínum sem bræðir hvaða grásleppu sem er 
Á sunnudagskveldið kíkkaði ég í heimsókn til
Sindra frænda og Rutar , en þar voru fyrir Heimir og Kata og enn og
aftur var bjór hafður um hönd. Byrjaði kvöldið á spjalli sem síðan
þróaðist útí einhvern teiknileik þar sem við karlmennirnir höfðum
yfirhöndina að lokum. Var þá ákveðið að spila Trivial og var skipt
í lið : Sindri og Heimir, Kata og Rut og svo var ég einn í liði .
Eftir um 20 mínútur var ég kominn með 4 kökur , Stúlkurnar 1 og
Steinþursarnir enga og var þá spilinu slúttað áður en niðurægingin
yrði meiri og var þá farið á Allann þar sem nokkrir bjórar voru
drukknir fram á nóttu og svo rölti ég heim í Kardimommubæ , vel
léttur og lagðist til hvílu enda átti að leggja af stað til borg
óttans snemma daginn eftir , en SMS var búinn að væla út far með
okkur Hauki.
Það var einn svartur blettur við þessa ferð.
Kannski ekki beint ferðina, heldur tímapunkt hennar. Það var á
laugardeginum. Þann dag tapaði Manchester United fyrir Chelsea og
fylltist ég viðbjóði þegar að ég sá John Terry lyfta enska
bikarnum. Argasti viðbjóður.
En að öðru .. Þar sem ég er búinn að
liggja heima eins og aumingji með flensu , hef ég lánað Svövu
bílinn á meðan að hún er búin að vera á helgarvöktum á Felli . Í
gærmorgun vaknaði ég við símtal frá henni þar sem hún tilkynnti mér
það , að hún hefði náð miðum á afmælis tónleika Bubba Morthens þann
06.06.06. Eins og flestir ef ekki allir vita þá verða þetta þrusu
tónleikar , þar sem m.a. Utangarðsmenn , EGÓ , Das Kapital og GCD
verða að spila.
Eins og handrukkari kom hún á BMW , parkaði í
stæði fyrir fatlaða , tróð sér í röðina og á endanum eftir rúmlega
klukkustunda bið gekk hún út úr verslun Og Vodafone með sjö síðustu
miðana sem seldir voru í stúku - Ekki slæmt af manneskju sem er um
1, 60 á hæð og innan við 50 kg á þyngd.
En jæja.. þetta er það eina sem mér datt í hug
að setja á blað í bili . Heilinn er búinn að vera steingeldur . Hef
oft reynt að byrja á bloggi en aldrei fundið neitt til að segja .
Reyndar virðist þetta að vera að ganga . Önnur hver bloggsíða er í
hvíld eða pásu í óákveðin tíma eða þá síðuhöfundur er að biðjast
fyrirgefningar á því að hafa ekki nennt að skrifa eitthvað inn eða
dottið neitt í hug . Ég get alltaf huggað mig við það , að ég er
ekki sá eini sem kem engu á blað.
Reyndar kemur mér á óvart hvað margir læðast
hingað inn á dag þrátt fyrir lélega uppfærslu . Hef séð teljarann
fara upp í 109 rétt fyrir miðnætti.
En jæja .. Ég er farinn að sofa - Vonandi verður
ekki eins langt í það næsta.
kv .
ggs