..:: Hertoginn af Gautlandi
ggs
Testing
Leitarbox

Bloggarar
09.10.2008 15:51:03 / ggs

..:: Próf fyrir verðandi foreldra ::..

Fékk þetta sent á mail . Eftir að hafa lesið yfir þetta , fór ég á plusferdir.is og leitaði að ódýrasta fluginu - aðra leið . En vegna ástandsins , ætla ég að bíta á jaxlinn og axla ábyrgð á því sem ég er búinn að gera - það er ekki aftur snúið !

Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!

Fituprófið

Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið

Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið

Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

Sköpunargáfuprófið

Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

Bílprófið

Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna

Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.

Þolpróf karla

Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!

Lokaprófið

Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.

Ert þú tilbúin(n) til að eignast barn? 

Svava skrifaði
hahahaha já nei nei þetta er bara yndislegt hva það eru 10 dagar í settan dag já það er of seint að hætta við :)

Sjáumst um helgina hver veit nema ég bjóði ykkur í mat í kreppunni núðlur eða grjónagraut ;)

Árni skrifaði
djöfullsins bruðl er í þér kona ! við látum þau koma með fisk að norðan !!!!!
oddur skrifaði
hahahahahaha, mer finnst þetta með bílinn það besta
Cavalier skrifaði
uuu BMW er með frekar mikið að station bílum fyrir þá sem ekki vita og með leðri líka svo það er auðvelt að þrífa bílinn að innan !!
Árni Arason skrifaði
Cavalier...

bara svo að þú vitir það þá er þetta brandari... Ekki reyna að færa rök fyrir einhverju sem á bara að hljóma fyndið fyrir suma og svo grátlegt fyrir þá sem hafa reynslu af þessu.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 179458
Dagsetning
22. mars 2010