|
|
25.10.2011 00:00:59 / ggs
... eða er teljarinn í ruglinu ? gaman væri ef að fólk nennti að kvitta , ekkert endilega með nafni , bara til að sjá hvort að það séu alvöru heimsóknir á bakvið þessar 30 - 50 heimsóknir !
kv . ggs
»
31.03.2009 17:32:35 / ggs
 Í dag kveðjum við þig, elsku amma Lóa. Við systkinin eigum ótrúlega góðar minningar sem ylja okkur um hjartarætur á erfiðum tímum. Þú reyndist okkur alltaf vel; þegar mamma veiktist tókst þú Gauta að þér og er Steinunn kom heim með mömmu og pabba einu og hálfu ári síðar varst þú okkar ómetanleg hjálp, við gátum alltaf leitað til þín. Við nutum þeirra forréttinda að búa fyrir ofan þig á Háveginum í nokkur ár og heimili þitt var okkar annað heimili.
Í stóra holinu var brugðið á leik, þar var sett upp búð eða villta vestrið og haldnar tískusýningar og alltaf varstu tilbúin að lána okkur það sem vantaði. Þær voru ófáar næturnar sem við fengum að kúra í ömmurúmi og þá söngstu fyrir okkur og við fórum saman með faðirvorið. Aldrei skammaðir þú okkur, varst alltaf svo blíð og góð og lagðir okkur lífsreglurnar á þinn yfirvegaða hátt.
Einnig minnumst við allra þeirra kræsinga sem þú töfraðir fram, skipti þá ekki máli hvort það voru stríðstertur eða hnallþórur, frómas, ömmuís eða bestu smákökur í heimi, kattartungurnar.
Síðustu ár hafa verið þér erfið en núna ertu komin á betri stað og við vitum að þú ert hvíldinni fegin. Við kveðjum þig með söknuði og sárt er til þess að hugsa að litlu langömmustrákarnir þínir, Sveinn Ingi og Jóhann Gauti, fái ekki að kynnast þér.
Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, takk fyrir allt
Þín barnabörn,
Guðmundur Gauti og Steinunn María.
( Minningargrein sem ég og SMS skrifuðum um ömmu Lóu og birtist í Morgunblaðinu 29.3.2009 ).
»
21.03.2009 12:25:38 / ggs
 Þegar síminn hringdi að morgni sunnudagsins 8.mars óraði mig ekki fyrir þeim hörmulegu fregnum að Sindri frændi hefði veikst og útlitið væri svart. Ég hugsaði með mér, hvernig svona ungur og hraustur drengur gæti veikst svo skyndilega sem raun bar vitni. Lífið getur verið svo óréttlátt. Á lífsleiðinni kynnist maður mörgum. Það er mér dýrmætt að hafa kynnst Sindra. Fyrir það er ég ósköp þakklátur. Þegar að ég byrjaði að vinna í Versló hjá Guðna bróður og Helgu þekktumst við lítið sem ekkert. Sindri var sex árum eldri ég, en þó var ég föðurbróðir hans og leiddist mér ekki að skjóta á hann ef að við vorum deila um eitthvað, að hann ætti að hlusta á föðurbróður sinn og svo hlógum við. Samband okkar varð strax mjög gott . Við urðum góðir vinir og hélt sú vinátta áfram þegar að Sindri hætti að vinna í Versló. Þegar að ég flutti til Reykjavíkur minnkaði sambandið eins og oft vill gerast og þegar ég flutti heim aftur, flutti hann stuttu síðar suður. En þegar að við hittumst var alltaf kátt á hjalla og stutt í gleðina sem einkenndi okkar vináttu. Að kvöldi sunnudagsins örlagaríka þegar að pabbi hringdi og lét mig vita að Sindri væri dáinn, spruttu upp ótal minningar í huga mér . Til dæmis þegar að við fórum í gæsaveiði í Skagafjörðinn og fórum á vitlaust tún í myrkrinu og kýrnar birtust við hliðina á okkur í birtingu, einkaþorrablótið með sviðasultunni, jafningnum og Meukow-flöskunni og við enduðum kvöldið rauðhærðir eftir að Rut litaði okkur. Þegar hann plataði mig með í stangveiði í Fljótin og lét mig kaupa veiðigræjur í Siglósport fyrir fleiri þúsund og ég fékk aldrei titt, varla þara eða þegar að hann fékk mig til þess að leysa sig af á dansnámskeiðinu til að hann gæti horft á Arsenal í Meistaradeildinni og ég tala nú ekki um allar stundirnar okkar saman í Versló. Þetta voru æðislegir tímar sem ég á aldrei eftir að gleyma, tímar sem ég á eftir að segja fólki frá, tímar sem ég á eftir að geyma í hjarta mér. Það er öllum hollt að umgangast jafn heila manneskju og Sindri var. Lífið brosti við og gatan virtist greið, þegar áfallið reið yfir. Það er svo sorglegt að hugsa til þess hvað Sindri átti eftir að gera margt og upplifa og hvað hann átti mikið að gefa öðrum. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens)
Elsku Rut, Jakob Auðun og Halldóra Helga, ég votta ykkur og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Sindri mun ávallt lifa í hjörtum okkar allra sem vorum svo lánsöm að kynnast honum. Guðmundur Gauti Sveinsson
(Minningargreinin sem ég skrifaði um Sindra og birtist í Morgunblaðinu í dag.)
»
03.03.2009 10:03:30 / ggs
Þetta er en eitt kjaftæðið sem gengur á Fésbókinni . Maður á að svara 50 spurningum um sjálfan sig og hérna er afraksturinn ..
Gjörið svo vel ..
1. Varst þú nefnd/nefndur í höfuði á einhverjum? Afa mínum heitnum , Guðmundi Gauta
2.Hvenær gréstu síðast? Líklegast á Crete 2006 .. man ekki eftir öðru tilfelli
3. Líkar þér við skriftina þína? Ég skrifa ekki , ég skrautskrifa.
4. Hvað er uppáhalds hádegisverðarkjötið þitt? Lamb
5. Áttu börn? Jamm , eitt stykki demant sem heitir Jóhann Gauti
6. Myndi þú vera vinur þinn? Auðvitað
7. Notast þú við kaldhæðni? Frekar oft já ..
8. Ertu enþá með hálskirtlana? Neibb
9. Teygjustökk? Líklegast ekki
10. Uppáhaldsmorgunkorn? Cocoa Puffs
11. Leysir þú reimarnar áður en þú ferð úr skónum? Ekki ef ég mögulega get.
13. Uppáhaldsísinn? Ben and Jerry´s
14. Hvað er það fyrsta sem þú tekur eftir í fari fólks? Vaxtalag
15. Rauður eða bleikur ? Rauður
16. Hvað finnst þér vera þinn stærsti galli? Gallaleysi mitt
17. Hvaða persónu saknar þú mest? SMS og family
18. Viltu að allir ljúki við þennan lista? Skiptir engu
19. Hvaða litur er á buxunum og skónum sem þú ert í núna? Svartur
21. Á hvað ertu að hlusta núna? Mínar eigin hugsanir - Allt hljótt
22. Ef þú værir vaxlitur, hvaða litur værir þú Rauði
23. Uppáhalds lykt? Sæll ..
24. Hvern talaðir þú síðast við í síma? Jón Tjón
25. Líkar þér við manneskjuna sem merkti þér þessa umræðu? Mjög vel
26. Uppáhalds íþrótt til að horfa á? Fótbolti
27. Háralitur? Músabrúnn
28. Augnalitur Gráblár
29. Notar þú linsur? Neibb
30. Uppáhaldsmatur? Lambakjöt
31. Hryllingsmynd eða góður endir? Góður endir - Þoli ekki hryllingsmyndir
32. Hvaða mynd horfðir þú síðast? Tropic Thunder - Allgjört kjaftæði
33. Hver er liturinn á bolnum sem þú ert í? Rauður
34. Sumar eða vetur? Sumar
35. Faðmlög eða kossar? Bæði
36. Uppáhaldseftirréttur? Ís
37. Hver er líklegastur til að svara þessum pósti? Eyða
38. Hver er ólíklegastur til að svara? Árni Óla
39. Hvaða bók ertu að lesa núna? Óráðnar Gátur
40. Hvaða mynstur er á músamottunni þinni? Manchester United logoið
41. Hvað horfðir þú á í sjónvarpinu í gær? CSI
42. Uppáhalds hljóð? Skrækir og hláturinn í Jóhanni Gauti
43. Róling stónes eða bítlarnir? The Beatles
44. Hvað er það lengsta sem þú hefur farið að heiman án forráðamanna? Crete
45. Hefur þú einhvern sérstakan hæfileika? Ójá .. hann er ..
46. Hvar fæddist þú? Siglufirði
47. Svör hvers hlakkar þér mest til að lesa? Eyða
48. Hvar hittir þú maka þinn? Merkismönnum, neðri hæð í vinnusalnum, Ármúla 36, 105 Reykjavík.
49. Ef þú myndir endurfæðast sem eitthvað spendýr (annað en maður) hvaða dýr yrði það? Köttur
50. Simpsons eða South Park? Simpson
- - -
Á meðan að maður er að skrifa sig í gang og starta þessu bloggi að nýju , þá verður þetta svona aumingjalegt til að byrja með .. En fylgist með , það hlítur að fara að koma gangur í þetta.
ggs
»
27.02.2009 10:02:21 / ggs
Jónas Kristjánsson ritstjóri og bloggari með meiru skrifaði á síðu sína í gærkveldi „Þjóðinni léttir að heyra, að tortímandinn er farinn úr Seðló í síðasta
sinn,“ um
brotthvarf Davíðs Oddssonar úr sæti seðlabankastjóra. Ætli Jónas hafi ekki horft á Svartsenegger til enda , því að Neggi kom með þá mögnuðu setningu sem hann stóð svo við með látum „I´ll be back“
»
26.02.2009 16:28:10 / ggs
Í gær , 25.2 , varð Jóhann Gauti fjögurra mánaða gamall. Ég hef verið að skoða myndir af honum frá því að hann fæddist og þegar að maður hugsar til baka , þá á ég erfitt með trúa því að það séu einungis fjórir mánuðir frá því að þessi gimsteinn kom í heiminn . Finnst hann vera orðinn svo stór og mannalegur . Heldur höfði og byrjaður að velta sér af maganum yfir á bakið .
Samband okkar feðga hefur farið batnandi síðustu daga . Nú sitjum við saman í tölvunni og hlustum á tónlist . Hef verið að spila 500 bestu lög allra tíma að mati The Rolling Stone magazin fyrir okkur feðgana og syngja með fyrir hann . Tekur hann undir með léttu spangóli og hefur mjög gaman af . Getum setið lengi saman og hlustað á góða músík
.
Við töluðum við Hans og Grétu í
Arhus á Skype-inu í gærkveldi . Sveinn Ingi fór hamförum, teljandi á
dönsku upp á tíu og leika listir sínar með Bubba byggir hamarinn sinn ,
berjandi allt sem hægt er að banka í .
Við í Glæsibæ getum
ekki beðið eftir að fá þau heim á klakann til að leyfa frændunum litlu
að hittast . Um jólin hafði Sveinn Ingi mestar áhyggjur af því að
Jóhann Gauti ætti ekki buxur og hætti ekki fyrr en búið var að klæða
hann í föt og sömu áhyggjur vöknuðu í gær þegar að hann sá að Jóhann
Gauti var buxnalaus . Umhyggjusamur stór frændi sem á eftir að passa
litla frænda þegar að þeir eldast.

Núna klukkan 10:00 er Jóhann Gauti að
fara í ungbarnaeftirlit og verður hann mældur í bak og fyrir , vigtaður
og að ég held stunginn eins og grís . Vonum að þetta gangi allt vel .
ggs
»
10.11.2008 15:54:21 / ggs
Eitt stutt.. Á meðgöngunni stofnuðum við síðu á barnalandi.is , en eftir að við komum heim ákváðum við að færa okkur yfir á barnanet.is . Eftir að geimferðarfélagið
uppfærði kerfið hjá sér , tók upp nafnið nino.is í stað barnanet.is , þá hækkaði
verðskráin upp úr öllu valdi sem og að við gátum ekkert unnið í síðunni
um helgina . Við reyndum að setja inn myndir en ekkert gekk. Þolinmæði mín er ekkert rosalega mikil , þannig að ég gafst upp á þessu kjaftæði sem var í gangi þar.
Þannig að í stuttu máli , við erum farinn aftur yfir á barnaland.is
Lykilorðið á barnalandi.is er það sama og var á barnaneti.is , nafn litlu systir Drífu .
Við skulum vona að þetta verði síðasti flutningurinn okkar .. í bili
Kveðja úr Glæsibæ.
Gauti , Drífa og Jóhann Gauti.
http://www.johanngauti.barnaland.is
»
30.10.2008 17:23:05 / ggs
Við fengum að fara heim af Sængurkvennadeildinni í gær . Komum í Engihjallann um kl. 14:00 og svaf litli prinsinn frá kl 13:00 - 18:30 .
Nóttinn var ekki jafn auðveld , sá stutti vildi fá að drekka á tveggja tíma fresti og virðist botnlaus. Drífa fór í heftatöku í morgun og lítur skurðurinn vel . Er farin að fá kláða í sárið og er það merki um að þetta sé að gróa vel .
Ef allt gengur eftir áætlun , þá erum við farin heim á morgun . Ætla að byrja að pakka niður í kvöld og setja eitthvað í bílinn og svo erum við farin heim á Sigló um 10 leytið á morgun.
Djöfull hlakkar mér rosalega til að komast heim . Er kominn með allgjört ógeð á Reykjavík . Erum búin að vera hérna í tæpar 3 vikur .
Meira síðar ..
ggs
»
28.10.2008 12:34:00 / ggs
Sá stutti kom í heiminn á laugardagskveldið síðasta kl . 19:17 eftir mikla og bið og smá vesen og vó hann 14 merkur og var hann 50 cm . Öllum líður rosalega vel og er Drífa öll að koma til . Fáum vonandi að fara heim á morgun Höfum reyndar lent í smá brasi með brjóstagjöfina , sá smái virðist vera botnlaus , getur drukkið endalaust , kannski gen úr Dúdda frænda en þetta er allt til bóta  Erum á stofu 13 á Sængurkvennadeildinni fyrir vini og vandamenn sem vilja kíkja í dag. Heimsóknartíminn er frá kl. 17-19:00 Bjallið bara í mig ef það er eitthvað - 868-9333 kv. ggs
»
17.10.2008 14:18:21 / ggs
Smá update fyrir vini og vandamenn .. Á laugardaginn síðasta settum við töskur og annann farangur í Prins Lu og héldum af stað til Sódómu. Gekk ferðin vel , fengum flott veður og góða færð , en það hefði svosem ekki skipt miklu , því að hvirfilbylurinn var fyrir löngu kominn á nagladekk . Sunnudaginn tókum við snemma . Skelltum okkur út að borða . Bauð frúnni út á bæjarins Bestu og skunduðum svo yfir götuna á Grjónamarkaðinn . Mætti halda að Drífa væri fyrsta konan á Fróni sem gengi með barn. Vorum rétt komin inn þegar að ein sölukonan stökk á okkur og bauð okkur til kaups stuðkant og rúmteppi á 1.000 kr. Illa farið , en í kaupbæti gátum við fengið rifið pífulak !?!? . Þetta hefði verið í lagi ef að unginn ætti eftir að liggja í jötu , en þar sem það er árið 2008 og hann á eftir að liggja í vöggu og rimlarúmi , afþökkuðum við "gott" boð. Næsta bauð okkur litlar og notaðar samfellur fyrir lítið - aftur afþökkuðum við "gott" boð. Sú þriðja kallaði á eftir okkur : Halló ! Halló ! Hey þið ! . Við stoppuðum og litum í kringum okkur en sáum engan sem væri að kalla á okkur , fyrr en við litum niður og þar stóð kona á sextugsaldri , um 1,40 á hæð , álíka há og eldhússtóll , en samt ekki dvergur því að útlimirnir voru í eðlilegum hlutföllum við annað og sagðist hún eiga fullt af barnafötum handa okkur , máttum "GRAMSA" eins og við vildum - enn og aftur afþökkuðum við "gott" boð. Eftir allar þessar ofsóknir ákváðum við að yfirgefa Grjónamarkaðinn og héldum út í dagsbirtuna með bros á vör og nokkrar bækur. Síðustu daga höfum við verið á fullu að sanka að okkur því dóti sem vantar upp á . Búin að fjárfesta í handklæðum , rúmfötum , pelum , teppum & fl . Erum búin að þræða Baby Sam , Hagkaup, IKEA , Móður Ást og RL búðina . Það eina sem eftir er er dýnan í vögguna . Förum í Baby Sam í dag og kaupum dýnu og þá getur erfinginn af Glæsibæ komið í heiminn . Síðastliðið þriðjudagskvöld fórum við í skoðunarferð um fæðingardeild Landspítalans ásamt fleiri pörum. Fengum þar góðar upplýsingar og einnig að kíkja í Hreiðrið og skoða okkur þar um . Í gær fórum við í mæðraskoðun í Hamraborginni og lítur allt vel út . Erfinginn er ekki fullskorðaður en að öðru leyti er allt tilbúið til komu . Settur dagur er þó ekki fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku , 21 október . jæja.. látum þetta duga í bili .. ggs
»
09.10.2008 15:51:03 / ggs
Fékk þetta sent á mail . Eftir að hafa lesið yfir þetta , fór ég á plusferdir.is og leitaði að ódýrasta fluginu - aðra leið . En vegna ástandsins , ætla ég að bíta á jaxlinn og axla ábyrgð á því sem ég er búinn að gera - það er ekki aftur snúið !
Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst! Fituprófið Smurðu
hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar
kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið. Leikfangaprófið Náðu
í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel
úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu
svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er
bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið
um nætur. Stórmarkaðsprófið Fáðu lánað
eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað
að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt
sem hún étur eða eyðileggur. Fataprófið Hefurðu
prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi
og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að
hafa alla armana inni í pokanum. Matarprófið Keyptu
þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana
svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og
pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn
á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu
innihaldinu á gólfið. Næturprófið Saumaðu
þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi.
Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um
leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann
frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í
sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina.
Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú
gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og
taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega
út! Sköpunargáfuprófið Fáðu þér
eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar.
Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni.
Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma
mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til
alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum. Bílprófið Gleymdu
því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að
aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér
súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar.
Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér
stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn
tilbúinn! Þolpróf kvenna Fáðu lánaðan
stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað
öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9
mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ?
9/10 verða eftir. Þolpróf karla Farðu inn
í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu
apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað.
Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín
verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér
dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn! Lokaprófið Komdu
þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig þau geta
bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum
barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um
eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt
svör við öllu. Ert þú tilbúin(n) til að eignast barn?
»
29.09.2008 14:04:46 / ggs
 Tillykke med dagen. Biðjum að heilsa Gaua og Sveini , Gauti og Drífa
»
29.09.2008 12:14:08 / ggs
Jæja .. Látum okkur nú sjá . Hvar eigum við að byrja . Ég gæti svo sem
lýst getnaðinum í smáatriðum en kann ekki við það hérna þessa stundina.
Frá því að Drífa pissaði á prikið , hefur tíminn liðið ótrúlega hratt. Mánuðir hafa liðið sem vikur og vikur sem dagar .
Við ákváðum strax að kaupa barnavagn , vöggu og rimlarúm fyrir ágóðann af fyrirtækinu sem við seldum fyrir metfé.
Þó var ég í upphafi full kærulaus. Hugsaði alltaf með mér að ég hefði
nægan tíma til að standa í öllu því sem þyrfti að gera , td. rýma
herbergið , mála það, parketleggja , setja upp gardínur , borða og bara
nefnið það.
Drífa tók þessu með stakri ró framan af sumri en eftir því sem að bumban stækkaði , minnkaði þolinmæðin í staðinn.
Núna í september var allt sett á fullt í hreiðurgerðinni. Þann 13
máluðum við allt herbergið hvít , 20 skelltum við bláa litnum á
neðripartinn og núna 27 parketlagði Bjössi herbergið og þar með er
hreiðrið nánast klárt.
Um leið settum við rimlarúmið saman , Bjössi og Drífa settu IKEA
kommóðuna saman og ég brasseraði mat á meðan , enda er ég með ofnæmi á
háustigi fyrir IKEA drasli !!
Nú er bara eftir að skella Bangsímon borðanum á vegginn , fjárfesta í
gardínum , þá er allt saman ready og þá getur unginn komið í heiminn .
ggs Hendi inn myndum á 123.is/ggs + Barnaland síðuna fljótlega
»
01.09.2008 23:59:31 / ggs
Erum við að tala saman eða ? Rooney , Tevez , Berbatov og Ronaldo ?
Djöfull á ég eftir að sofna vel í nótt . Drífa á örugglega eftir að vakna við mig hlægjandi upp úr svefni !
Góða nótt Manchester United stuðningsmenn !? Þetta er búinn að vera frábær dagur og það eru bara frábærir tímar framundan !!
ggs
»
25.08.2008 00:04:09 / ggs
Ég er í viku sumarfríi sem endar á þriðjudaginn og er búinn að vera hryllilega latur . Búinn að sofa út alla dagana . Litlu áorkað . Samt tekist að taka til í Glæsibæ, fara í útkall með Sigurvin og halda 1 stk matarboð fyrir stórfjölskylduna , en SMS var að flytja til Baunaveldis og buðum við því SMS , Guðna , Helgu , Bjössa , Ma og Pa í Lasagne í Glæsibæ .
Þegar að ég sat á nýja heimilispostulíninu um daginn , las ég áhugaverða grein í blaðinu meðganga.is . Fjallaði hún um "hreiðurgerðina" og er klausan svona :
Hreiðurgerðin - Þegar kemur að hreiðurgerðinni hjá konunni þá heyrir þú þetta oft: „Elskan, eigum VIÐ ekki að mála herbergið,“ (Eitt af mörgu sem konan þín á eftir að finna upp á að gera) sem þýðir að þú gerir það og hún horfir á og stjórnar. Taktu þessu eins og maður.
Ég var búinn að kvíða þessu lengi . Enda þoli ég ekki að mála . Að mála er eitt það leiðinlegasta sem ég geri . Eins og að slægja 3 tonn af undirmáli. Náði að humma þetta af mér alla vikuna en á laugardaginn var komið að skuldadögum . "Hreiðrið" skyldi málað . Ég óttaðist mest að vera skipað áfram harðri hendi , fá enga hvíld og lúmska punkta um helgidaga frá frúnni en allt kom fyrir ekki . Ef eitthvað er , þá stóð hún sig mun betur en ég . Gaf ekki tommu eftir og málaði eins Duffield-in . Kláruðum svo part 1 í dag og verður part 2 tekinn í vikunni .
Hættum snemma í laugardaginn , því okkur var boðið í grill til Gunnu Hauks . Yfirkokkur var Rúnar , en hann sá um grillið og Gunna um meðlætið . Eftir matinn sátum við og sötruðum öl og spjölluðum áður en Singstar var blastað í botn . Gunna var ótvíræður sigurvegari kvöldsins en ég tel mig hafa sungið góðan leik og náð silfrinu sannfærandi .
Merkilegt nokk . Í gærkveldi áttaði ég mig á því hvað ég væri að verða gamall . Ég kunni varla staf í nýju lögunum sem við reyndum að syngja . En var með öll gömlu nánast á hreinu . Þetta er frekar óþægileg tilfinning . Stundum verið sagður gömul sál og er það líklega alveg hárrétt .
Ég er auðvitað að verða pabbi í október og á þá líklegast eftir að taka stórt þroskastökk , eða það vona ég. Fæ kannski skeggrót og smá bringuhár og get þá loks farið í ríkið án þess að verða spurður um skilríki .
Þýskur rithöfundur Hermann Hesse (1877-1962) sagði eitt sinn að því meira sem einhver þroskast, því yngri verður hann. Og vissulega er fullt af fólki sem verður kraftmeira og ötulla, víðsýnna og umburðarlyndara eftir því sem það eldist, lifir við meira frelsi og sjálfstraust. Það er mikilvægt að muna að það að eldast og það að verða gamall er ekki endilega það sama.
Þess vegna ætla ég að brosa framan í heiminn í dag . Ég er ekki að verða gamall . Ég er bara að þroskast . Ég á afmæli í dag. Ég er 25 ára í dag.
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 213459
Dagsetning
29. janúar 2012
|